Bílar

Sjálflýsandi Nissan Leaf

Finnur Thorlacius skrifar
Nissan í Evrópu hefur í tilraunaskyni þróað sjálflýsandi bílalakk í samstarfi við Hamish Scott. Framtakið er liður í því að vekja athygli á ýmsum orkusparandi aðgerðum sem eigendur Leaf í Bretlandi geta leyft sér vegna þess sparnaðar í útgjöldum sem Leaf færir þeim.

Bílalakkið frá Nissan er hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum sem er alfarið búið til úr náttúrulegum efnum og er 100% umhverfisvænt. Væri það sett á markað myndu sjálflýsandi eiginleikar þess endast í 25 ár.

Samkvæmt frétt frá Nissan er rekstrarkostnaður Leaf aðeins um 2 pens á hverja ekna mílu. Það hefur leitt til aukins kaupmáttar bíleigendanna og gert þeim kleift að fjárfesta í enn fleiri orskusparandi aðgerðum. Hafa t.d. margir fengið sér sólarrafhlöður til að lækka orkureikning heimilisins. Í Bretlandi eru rúmlega 7.500 Nissan Leaf í umferðinni og fer þeim hratt fjölgandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×