Lífið

Sjáið myndbandið: Pakkar inn gjöfum á ógnarhraða

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Myndband á Facebook-síðu SHIHO Style & Design hefur gengið í endurnýjun lífdaga nú í aðdraganda jólanna.

Á myndbandinu, sem sett var á síðuna í ágúst, sést verslunarstarfsmaður í japönsku versluninni Takashimaya pakka inn gjöf á ógnarhraða og sýnir tækni sem gerir það að verkum að hann þarf aðeins að nota límband á tveimur stöðum.

Myndbandið gengur nú manna á milli og spurning er hvort margir treysti sér í að æfa þessa mögnuðu tækni?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×