Fótbolti

Sjáið magnað mark Lamela og þegar þrennumaðurinn fór í markið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harry Kane fór í markið fyrir Hugo Lloris.
Harry Kane fór í markið fyrir Hugo Lloris. Vísir/Getty
Tottenham skemmtu sér vel á White Hart Lane í kvöld þegar Tottenham-liðið vann 5-1 stórsigur á Asteras í 3. umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Harry Kane skoraði þrennu fyrir Tottenham og fór síðan í markið eftir að Hugo Lloris fékk rauða spjaldið.

Harry Kane var reyndar fljótur að sýna okkur það að markið er ekki hans staða því hann fékk á sig mjög klaufalegt mark úr aukaspyrnunni sem var dæmd á Lloris.

Harry Kane skoraði fleiri en ekki fallegri mörk en Erik Lamela sem skoraði mörk númer tvö og þrjú hjá Tottenham í leiknum. Fyrra mark Argentínumannsins var af betri gerðinni.

Hér fyrir neðan má sjö öll mörk Tottenham í leiknum en Ríkharð Óskar Guðnason fór yfir þau öll í lok útsendingar Stöðvar tvö sport frá leiknum.

Mörkin í Tottenham-leiknum í kvöld

Tengdar fréttir

Ragnar og félagar töpuðu fyrsta leiknum sínum

Ragnar Sigurðsson og félagar í rússneska liðinu Krasnodar töpuðu 2-4 á heimavelli á móti þýska liðinu Wolfsburg í 3. umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í Rússlandi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×