Lífið

Sjáið Justin Timberlake tárast á tónleikum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Justin Timberlake á tónleikum.
Justin Timberlake á tónleikum. vísir/getty
Tónlistarmaðurinn Justin Timberlake hélt tónleika í Barclays Center í New York á sunnudagskvöldið.

Eins og sést í meðfylgjandi mynbandi mætti tíu ára strákur á tónleikana sem segist hafa hlustað á Justin síðan hann var tveggja ára. Drengurinn gaf Justin gjöf, forláta slaufu, en sjálfur var snáðinn klæddur í skyrtu með slaufu.

Justin var svo upp með sér að hann táraðist en drengurinn litli fór að hágráta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×