Lífið

Sjáið átján ára gamlan Channing Tatum strippa

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tímaritið Us Weekly birtir myndband af leikaranum Channing Tatum þar sem hann sést vinna fyrir sér sem fatafella á næturklúbbi í Flórída árið 1999, aðeins átján ára gamall. Þá gekk hann undir nafninu Chan Crawford.

Á klúbbnum var bannað að vera allsnakinn og því sést Channing fara úr öllu í myndbandinu nema neonlituðum þveng.

Channing stóð sig svo vel í klúbbnum að hann vakti athygli konu sem réð hann til að dansa í tónlistarmyndbandi við lagið She Bangs með Ricky Martin.

Leikarinn er stoltur af fortíð sinni en kvikmyndin Magic Mike, frá árinu 2012, er byggð á ferli hans sem fatafellu. Hún gekk afar vel í kvikmyndahúsum og er framhald hennar, Magic Mike XXL, nú í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×