Lífið

Sjáðu þúsund manna sveit spreyta sig á Nirvana og Foo Fighters

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svaka band.
Svaka band.
Hljómsveitin The Rockin 1000 vakti fyrst athygli árið 2015 þegar hún tók lagið Learn To Fly með Foo Fighters. Í þessari rokkhljómsveit eru nokkuð margir meðlimir, eða alls 1000.

Sveitin kemur frá Ítalíu og er í raun alveg ótrúlegt að fylgjast með þeim á sviðinu. Sviðið þeirra þarf ávallt að vera risastór grasblettur en fyrr á þessu ári gaf bandið frá sér sína eigin útgáfu af Smells Like Teen Spirit með Nirvana.

Hér að neðan má sjá bæði lögin en um er að ræða tvær frábærar útgáfur.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×