Íslenski boltinn

Sjáðu markaveisluna úr Eyjum

Anton Ingi Leifsson skrifar
ÍBV rúllaði yfir Fylki í átta liða úrslitum Borgunarbikars karla í dag, en leikið var í Eyjum. Lokatölur urðu 4-0 sigur heimamanna.

Heimamenn voru mjög vel stemmdir enda Goslokahátíðin í gangi í Vestmannaeyjum um helgina og þeir ætluðu svo sannarlega ekki að skemma hátíðarhöldin þessa helgina.

Bjarni Gunnarsson kom ÍBV yfir í fyrri hálfleik og þannig stóðu leikar í hálfleik. Ian Jeffs bætti við marki í upphafi síðari hálfleiks, en það var afar fallegt mark.

Aron Bjarnason kom ÍBV svo í 3-0 og Bjarni Gunnarsson innsiglaði 4-0 sigur með sínu öðru marki. Fylkismenn voru eins og lömb leidd til slátrunar, en nánari umfjöllun og viðtöl frá leiknum má lesa hér.

ÍBV er því komið í undanúrslitin, en það ræðst á morgun og á mánudag hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í undanúrslitin.

Mörkin úr leiknum má sjá í sjónvarpsglugganum hér að ofan, en þau byrja á 00:25.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×