Fótbolti

Sjáðu markasúpuna hjá Real Madrid

Anton Ingi Leifsson skrifar
Real Madrid gjörsamlega keyrði yfir nýliða Deportivo í dag, en lokatölur urðu 2-8. Ótrúlegar tölur.

Cristiano Ronaldo (3), Javier Hernandez (2), Gareth Bale (2) og James Rodriguez skoruðu mörk Real, en þeir Jose Verdu Toche og Haris Medunjanin klóruðu í bakkann fyrir heimamenn.

Öll mörkin má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×