Lífið

Sjáðu inn í dýrasta húsið í Banda­ríkjunum: Bíó­salur, þyrlu­pallur, nammiland og tveir kampa­vínskjallarar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rosaleg eign.
Rosaleg eign.
Viðskiptamaðurinn Bruce Makowsky hefur sett á sölu dýrasta húsið í Bandaríkjunum en er kaupverðið 250 milljónir Bandaríkjadollara, eða því sem samsvarar tæplega 29 milljörðum.

Í húsinu eru tólf svefnherbergi, þyrlupallur og þyrla, tveir kampavínskjallarar, nammiland að verðmæti 25 milljóna íslenskra króna en eigin var sett á sölu á miðvikdaginn síðastliðinn.

Húsið er staðsett í Bel Air hverfinu í Los Angeles. Með húsinu fylgir einnig 30 milljóna dollara bílafloti en í íslenskur krónum er það 3400 milljónir.

Í húsinu má einnig finna keilusal, lúxusbíósal og mjög veglega sundlaug með útsýni yfir alla borgina.

Dýrasta hús Bandaríkjanna var áður í Flórída og var sett á það 195 milljónir dollara. Hér að neðan má sjá myndband innan úr villunni í Bel Air.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×