Íslenski boltinn

Sindri lánaður til Vals

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sindri fagnar hér marki með Leikni.
Sindri fagnar hér marki með Leikni. vísir/stefán
Sindri Björnsson, 21 árs miðjumaður Leiknis, hefur verið lánaður til Vals út komandi leiktíð en þetta kemur fram á heimasíðu Vals.

Sindri er fæddur árið 1995 en hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar spilað 77 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 16 mörk.

Sindri var einn af lykilmönnum Leiknis á síðustu leiktíð. Hann hefur leikið með öllu yngri landsliðum Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×