Innlent

Síðasti ríkisráðsfundur Ólafs Ragnars

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum nú klukkan 11. Ríkisráð skipa ráðherrar og forseti Íslands. Um er að ræða síðasta ríkisráðsfund Ólafs Ragnars en hann lætur af embætti næstkomandi mánudag, 1. ágúst.

Að fundi loknum mun forseti bjóða ráðherrum, forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar ásamt mökum til hádegisverðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×