Sex handteknir í aðgerðum lögreglu gegn kannabisræktun í borginni Kjartan Kjartansson skrifar 23. febrúar 2018 17:59 Nærri því 400 kannabisplöntur fundust í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi. Myndin er úr safni. Vísir/Stefán
Hald var lagt á nærri því 400 kannabisplöntur í iðnaðarhúsi í Kópavogi nýlega. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ræktunin þar hafi verið sú stærsta af þeim sem hún hefur stöðvað á nokkrum stöðum í umdæminu undanfarið. Sex voru handteknir. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að um sex kíló af tilbúnum kannabisefnum til sölu hafi fundist í iðnaðarhúsnæðinu í Kópavogi. Ræktunin hafi verið „mjög fullkomin“ og búnaðurinn eftir því. Lögreglan tók meðal annars gróðurhúsalampa, blásara og straumbreyta í tuga tali í sína vörslu. Þrír karlmenn voru handteknir í tengslum við ræktunina þar. Þá stöðvaði lögreglan kannabisræktun í bílskúr í austurhluta Reykjavíkur. Þar var lagt hald á um 250 kannabisplöntur. Hálft kíló af kannabisefnum fannst einnig í bílskúrnum, en þar var sömuleiðis lagt hald á mikið af búnaði tengt ræktuninni. Einn var handtekinn vegna málsins.Kókaín, MDMA og fjármunir fundust við húsleit í HafnarfirðiRúmlega 70 kannabisplöntur voru gerðar upptækar þegar ræktun var stöðvuð í fjölbýlishúsi í vesturhluta borgarinnar, en þar var sömuleiðis einn handtekinn í þágu rannsóknarinnar. Loks lagði lögreglan hald á eitt og hálft kíló af tilbúnum kannabisefnum til sölu við húsleit í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Á sama stað fannst sömuleiðis ætlað kókaín og MDMA, auk fjármuna sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Einn var handtekinn í þágu rannsóknarinnar. Málin, sem eru óskyld, teljast öll upplýst, en fimm mannanna sem komu við sögu í þeim eru um þrítugt. Sjötti maðurinn sem var handtekinn i þessum aðgerðum er á sextugsaldri.
Lögreglumál Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira