Lífið

Seth Meyers hélt líka upp á afmælið á Íslandi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Seth er óhræddur við að birta myndir frá Íslandsdvölinni á Instagram.
Seth er óhræddur við að birta myndir frá Íslandsdvölinni á Instagram.
Grínistinn og leikarinn Seth Meyers fagnaði afmæli sínu hér á landi í gær en Seth varð 41 árs gamall. Seth birtir myndir á Instagram af dvöl sinni á landinu þar sem hann sést meðal annars stilla sér upp fyrir framan Seljalandsfoss með vini sínum.

Ekki er ljóst hve lengi Seth er á Íslandi en með honum í för er eiginkona hans, mannréttindalögfræðingurinn Alexi Ashe. 

Fetar Seth þannig í fótspor rapparans Jay Z sem hélt upp á 45 ára afmæli sitt hér á landi fyrr í mánuðinum.

Seth er hvað þekktastur fyrir að stjórna þættinum Late Night with Seth Meyers á NBC en áður en hann byrjaði með hann var hann aðalhandritshöfundur þáttanna Saturday Night Live. Þá var hann kynnir á Emmy-verðlaununum núna í ágúst.

95 percent sure this bundled up lady is my wife

A photo posted by @sethmeyers on

.@steelers nation representing in Iceland!

A photo posted by @sethmeyers on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×