Lífið

Sérfræðingar Eurovísis: Þetta eru bestu lögin í kvöld

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Eurovísir fékk til liðs við sig þrjá sérfræðinga í Eurovision úr Félagi áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva til að fara yfir lögin sem keppa í Eurovision í kvöld. Þau Steinunn Björk Bragadóttir, Heiður Maríudóttir og Charles Gittins fóru yfir lögin og gáfu þeirra sérfræðiálit.

Við tókum saman það sem hæst bar en hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að ofan.

Rússland

„Þetta er stórkostleg lag. Þetta er mögulega að fara að vinna Eurovision,“ segir Heiður. Charles og Steinunn tóku undir án þess þó að vera sérlegir aðdáendur Rússa í keppninni. „Ég hef elskað rússnesku lögin síðustu tvö ár en lagið er mjög gott og þetta flýgur í úrslitin en svo, æ, ég veit það ekki,“ segir Charles.

Belgía

„Lagið er mjög gott en mér finnst takturinn skrítinn,“ segir Charles. Þau Heiður eru sammála um það og að takturinn virki. „Hann sígur djúpt inn í mann og nær manni,“ segir Heiður. Steinunn vonast til að lagið fljúgi áfram til þess að tryggja að minnsta kosti eitt gott lag komist áfram af fyrra kvöldinu. „Hann syngur frábærlega „live“,“ segir hún.

Eistland

„Síðast þegar ég gerði lista var þetta í þriðja sæti hjá mér,“ segir Steinunn, sem tekur þó fram að listinn breytist daglega. „Þetta finnst mér besta lagið í fyrri undankeppninni,“ segir hann. „Eina vandamálið fyrir mig er að það er ósamræmi á milli tónlistarinnar og textans.“ Öll þrjú voru þau sammála um að lagið væri gott.

Hvíta-Rússland

„Þetta er ágætis hjartastuðtæki,“ segir Steinunn en þremenningarnir eru sammála um að þetta lag henti vel á eftir ungverska laginu, sem ekkert þeirra er sérlega hrifið af. „Þetta er fáránlega grípandi viðlag.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×