Innlent

Selja fasteignir án réttinda: Titla sig miðlara, sölufulltrúa eða real estate agent

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ingibjörg Þórðardóttir minnir á að fasteignakaup og -sala sé risaákvörðun þar sem borgi sig að skipta við þá sem hafi tilskilin réttindi.
Ingibjörg Þórðardóttir minnir á að fasteignakaup og -sala sé risaákvörðun þar sem borgi sig að skipta við þá sem hafi tilskilin réttindi. Vísir
Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, segir löggjafann og yfirvaldið hafa sofnað á verðinum. Fjölmargir sem stundi fasteignasölu án leyfis búi sér til aðra titla til að líta vel út gagnvart kaupendum og seljendum.

„Það er af því þeir mega ekki kalla sig fasteignasala,“ sagði Ingibjörg í Bítinu í morgun aðspurð hvers vegna aðrir titlar séu að skjóta upp kollinum. Ýmist titli fólk sig fasteignasala upp á ensku eða styðjist við titla á borð við sölufulltrúa og fasteignamiðlara.

„Þetta er lögverndað starfsheiti. Það má enginn kalla sig fasteignasala án þess að hafa fengið leyfi ráðuneytis,“ segir Ingibjörg. Hún minnir á að um fjögurra missera nám sé að ræða við Endurmenntun Háskóla Íslands. Auk þess þurfi að uppfylla fleiri skilyrði. Stúdentspróf eða sambærileg menntun sé nauðsynleg.

Fasteignasölur sópi til sín sölufulltrúum

„Til að öðlast starfsréttindi þarf að hafa unnið í tólf mánuði á fasteignasölu undir handleiðslu löggilts fasteignasala,“ segir Ingibjörg. Auk þess þurfi viðkomandi að vera lögráða, hafa staðist próf fyrir fasteignasala og kaupa sérstaka starfsábyrgðartryggingu.

Ingibjörg segir þá sem reka fasteignasölur meðal annars hafa sópað inn til sín sölufulltrúum. Hins vegar sé það svo að í lögunum komi skýrt fram að réttindalaus megi ekki koma að vinnu við fasteignasölu, skoðun, skjalagerð og öðru því um líkt.

„Ef fólk kýs að eiga viðskipti við ákveðna aðila þá er það bara þannig. En það ætti að gæta sín á því að þeir eru réttindalausir.“

Þó sé allt í lagi að ráða aðstoðarfólk á fasteignasölur til að sinna bókhaldi, svara í símann og ná í kaffi. Fasteignakaup sé hins vegar ein stærsta ákvörðun fólks á lífsleiðinni. Fólk sé að binda sig fjárhagslega til allt að fjörutíu ára og ætti að láta fagfólk um að sinna viðskiptunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×