Lífið

Selena Gomez fær fyrstu vaxstyttuna

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Aðdáendur Selenu í Orlando er eflaust glaðir yfir fréttunum.
Aðdáendur Selenu í Orlando er eflaust glaðir yfir fréttunum. vísir/getty
Vaxmyndasafnið Madame Tussauds opnar útibú í Orlando í Bandaríkjunum snemma á næsta ári.

Nú er búið að tilkynna hvaða stjarna verður fyrst til að fá vaxmynd af sér á safninu en það er engin önnur en leik- og söngkonan Selena Gomez.

Selena er hvað þekktust fyrir að leika í þáttum á sjónvarpsstöð Disney en hún hefur einnig verið mikið á milli tannanna á fólki síðustu ár fyrir að vera í haltu mér slepptu mér sambandi við poppprinsinn Justin Bieber, en stytta af honum mun án efa einnig prýða nýja safnið í Orlando.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×