Innlent

Segja auglýsinguna ekki vera barnaklám

Auglýsingin hefur vakið mikla athygli.
Auglýsingin hefur vakið mikla athygli. MYND/FACEBOOK/Bragi Þór Antoníusson
„Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir því að þetta er auglýsing fyrir fullorðins fatnað," segir verslunarstjóri United Colors of Benetton í Kringlunni.

Auglýsing sem birtist í glugga verslunarinnar á dögunum hefur vakið mikla athygli Kringlugesta en þar má sjá unga stúlku á Evuklæðunum einum.

Samkvæmt upplýsingum frá Benetton er auglýsingin hluti af sérstöku gallabuxna-þema í versluninni.

Auglýsingin hefur farið á mikið flug á samskiptamiðlum í dag.

„Jú, við höfum fengið fyrirspurnir um auglýsinguna," segir verslunarstjórinn. „Okkur hefur verið sagt að þetta sé barnaklám en svo er ekki. Þetta er auglýsing sem okkur var skaffað og hún er fyrir fullorðins fatnað."

Sp. blm. Það hefur ekki komið til tals að fjarlægja auglýsinguna?

„Ég gerði það áðan en fékk síðar símtal frá eigandanum um að birta hana aftur," segir verslunarstjórinn






Fleiri fréttir

Sjá meira


×