Glamour

Segist hafa sofið hjá Kim og Khloe

Ritstjórn skrifar
Kardashian fjölskyldan
Kardashian fjölskyldan GLAMOUR/GETTY
Rapparinn the Game gaf út lag fyrr á árinu þar sem hann segir í textanum að hann hafi sofið hjá þremur meðlimum Kardashian fjölskyldunnar. Það var svo á þriðjudaginn sem hann settist niður með spjallþáttdrottningunni Wendy Williams og málið um kynlíf með Kardashian systrum komst loks á hreint.

Willams óð beint í spurninguna um hvort þetta væri satt og hverjum af þeim hann hefði sofið hjá. Rapparinn hélt því staðfastlega fram að það væru Khloe og Kim, og að sú þriðja væri mágkona þeirra Blac China. Systurnar hafa enn ekki tjáð sig um málið, enda kannski engin þörf á því.

Viðtalið við rapparann má sjá í spilaranum hér að neðan.
Khloe og The Game hafa verið vinir um langt skeið.glamour/getty





×