Lífið

Segir Kardashian-nafnið skemma fyrir sér

Kendall Jenner segir Kardashian-nafnið þvert á móti hafa hjálpað sér að ná frama í módelbransanum og segir hún að oft á tíðum hafi hún hreinlega bannað eldri systur sinni, Kim, að mæta á tískusýningar þar sem hún vildi ekki að fólk vissi að þær væru skyldar.

„Ég vil að fólk taki mig alvarlega sem ofurfyrirsæta. Fólk heldur því fram að framinn hafi hreinlega bara alltaf verið til staðar hjá mér en það var ekki þannig. Ég hef þurft að hafa mikið fyrir hlutunum og stundum hefur Kardashian-nafnið hreinlega unnið gegn mér. Þegar ég fór í módelprufur var ég að vonast eftir því að fólk myndi ekki kannast við mig úr raunveruleikaþættinum okkar og ég var mjög þakklát þeim sem vissu ekki hver ég var,“ sagði Kendall í viðtali við tímaritið LOVE.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×