Fótbolti

Segir Hollendinga ekkert græða á því að skoða tapleikinn í Laugardalnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson fagnar öðru marka Gylfa Þórs Sigurðarsonar á móti Hollandi.
Aron Einar Gunnarsson fagnar öðru marka Gylfa Þórs Sigurðarsonar á móti Hollandi. Vísir/Andri Marinó
Aron Einar Gunnarsson og félagar í íslenska landsliðinu eru orðnir spenntir fyrir leiknum á móti Hollandi á Amsterdam Arena annað kvöld en með sigri getur íslenska liðið nánast tryggt sér sæti á EM í Frakklandi 2016.

„Það er gífurleg spenna og maður finnur fyrir henni. Það er bara virkilega jákvætt að þetta sé leikur þar sem eitthvað er undir. Þetta verður vonandi virkilega skemmtilegur leikur en erfiður leikur," segir Aron Einar.

Holland er í 3. sæti í riðlinum og fimm stigum á eftir Íslandi sem situr í toppsætinu í A-riðlinum.

„Við gerum okkur alveg grein fyrir því að Hollendingar eru ein sterkasta fótboltaþjóð í heimi og við erum ekkert að fara að ljúga neitt um það. Við erum komnir hingað til að sækja þrjú stig eins og egóið okkar er. Við viljum þrjú stig en hvernig fer verður bara að koma í ljós á fimmtudaginn," segir Aron Einar.

Íslenska liðið vann fyrri leikinn 2-0 þar sem Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörkin í fyrri hálfleiknum.

„Ég býst ekki við ólíkum leik frá því þegar við unnum þá í Laugardalnum. Við vitum að þeir verða mikið með boltann og við verðum bara að nýta okkar hraða og sækja hratt á þá þegar við getum. Við þurfum að nýta okkur svæðin sem þeir skilja eftir þegar þeir sækja," segir Aron Einar og varnarleikurinn er áfram mikilvægur.

„Við þurfum að vera þéttir og færa varnarleikinn saman þétt og vel. Þá komast þeir ekki í gegnum okkur en það þarf að vera sama vinnsla í liðinu og var í Hollandsleiknum hér heima. Þá erum við í góðum málum," segir Aron Einar en verða Hollendingarnir ekki búnir að skoða fyrri leikinn vel og laga það sem klikkaði í Laugardalnum?

„Hvað geta þeir skoðað frá því í fyrri leiknum á móti okkur? Þeir voru ekkert lélegir. Við lokuðum bara það vel á þá. Það heppnaðist hundrað prósent hvernig við lögðum upp leikinn. Þeir fóru síðan í einhverja langa bolta til að redda leiknum en það var kannski aðeins ólíkt þeim," segir Aron Einar.

„Við vitum að þeir eru á heimavelli og áhorfendurnir hérna ætlast til þess að þeir sigri litla Ísland. Það er bara þannig og það er gífurleg pressa á þeim en engin pressa á okkur í rauninni. Við setjum samt pressu á okkur sjálfa og það er hollt og gott," segir Aron Einar.

Íslenska liðið er með ellefu mörk í plús og hefur aðeins fengið á sig þrjú mörk í fyrstu sex leikjunum. Tékkar hafa skorað öll þessi mörk.

„Þetta er búið að vera þannig í þessari undankeppni að við erum búnir að vera það sterkir varnarlega. Við höfum fengið fá mörk á okkur og þetta er hvernig þjálfararnir eru búnir að setja þetta upp. Við vitum nákvæmlega hvað við erum að fara að gera fyrir hvern leik og það hefur heppnast hingað til. Vonandi gerir það á fimmtudaginn líka," segir Aron Einar.


Tengdar fréttir

Birkir Már: Ég held að Robben muni ekkert eftir mér

Birkir Már Sævarsson hefur verið fastamaður í hægri bakverðinum í síðustu leikjum Íslands í undankeppni EM 2016 og það eru góðar líkur á að svo verði áfram á móti Hollandi á fimmtudaginn.

Birkir Bjarna bætir við sig fimmta tungumálinu

Birkir Bjarnason segir að honum líki lífið vel í Sviss eftir flutningana frá Ítalíu í sumar. Birkir leikur með Basel sem hefur farið vel af stað í deildinni þótt liðinu hafi skrikað fótur í forkeppni Meistaradeildar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×