Innlent

Segir ekkert styðja að Sunshine Press Productions reki Wikileaks

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Vísir/Getty Images
Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Valitor, segir að ekkert í opinberum gögnum um Sunshine Press Productions styðji þá staðhæfingu að fyrirtækið sé rekstraraðili Wikileaks. Datacell, sem á um greiðslugátt fyrir fyrirtækið, hefur gert milljarða króna skaðabótakröfu á Valitor vegna óheimilar lokunar á greiðslur til félagsins. Þetta segir lögmaðurinn á Facebook.

Segir félagið tæknilega gjaldþrota

„Julian og helsti samverkamaður hans Kristinn Hrafnsson hafa þrátt fyrir takmarkaða vinnu á vegum WikiLeaks ekki náð að sinna rekstri Sunshine Press Productions ehf. Þannig hefur félagið ekki skilað nema tveimur ársreikningum öðrum vegna rekstrar 2010 og hinum vegna rekstrar 2011,“ segir hann. „Samkvæmt þeim er félagið tæknilega gjaldþrota, enda með neikvætt eigið fé og skammtíma skuldir þess við erlendan lánadrottinn tæpar 32 milljónir.“

Sigurður segir að íslenska ríkið eigi von á vænu skattfé gangi krafan eftir. „Þau eru ekki mörg félögin á Íslandi sem geta rakað inn milljörðum án nokkurs tilkostnaðar,“ bætir hann svo við.

Hafa óskað eftir gjaldþrotaskiptum

Fyrirtækin Datacell og Sunshine Press Productions hafa krafist þess að Valitor verði tekið til gjaldþrotaskipta vegna 10,3 milljarða króna skaðabótakröfu. Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, sagði við fréttastofu í gær, miðvikudag, að engar tekjur væru tilgreindar þar sem þeir styrkir sem höfðu borist áður en greiðslugáttinni var lokað hafi skilað sér seinna inn í fyrirtækið.

„Þessir litlu fjármunir sem komu þarna inn, þessa fáu klukkutíma sem Valitor leyfði þessu að vera opið áður en þeir skelltu í lás með ólögmætum hætti eins og Hæstiréttur komst að fyrir tæpum tveimur árum, var ekkert skilað inn í Wikileaks fyrr en löngu síðar. Var þá bara á vörslureikningi,“ sagði Kristinn.


Tengdar fréttir

Talsmaður Wikileaks furðar sig á framgöngu Valitors

Kristinn Hrafnsson talsmaður Wikileaks segir að styrkir til samtakanna hafi ekki borist fyrir en síðar og því sé þeirra ekki getið í ársreikningum félags sem annaðis söfnun styrkjanna. Hann segir aðalatriði málsins að VISA á Íslandi hafi ekki sýnt neinn vilja til að greiða samtökunum bætur fyrir lögbrot sín.

Gera kröfu vegna Wikileaks styrkja en engar tekjur í bókhaldi

Engra tekna er getið í ársreikningum félaga sem önnuðust söfnun styrktarfjár fyrir uppljóstrunarsíðuna Wikileaks en þessi félög hafa gert milljarða króna skaðabótakröfu á hendur VISA á Íslandi vegna lokunar á greiðslugátt. Ekki liggur fyrir hvað varð um styrkina.

Hafa krafist þess að Valitor verði tekið til gjaldþrotaskipta

Tvö fyrirtæki sem önnuðust söfnun styrktarfjár fyrir Wikileaks hafa krafist þess að Valitor, útgefandi VISA á Íslandi, verði tekið til gjaldþrotaskipta vegna ógreiddrar skaðabótakröfu sem er rúmlega 10 milljarðar króna með vöxtum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×