Innlent

Segir Bjarna hafa valdið upplausn á Landspítala við gerð fjárlaga

Hjörtur Hjartarson skrifar
Formaður Samfylkingarinnar sagði fjármálaráðherra hafa valdið upplausn á Landspítalanum við gerð fjárlaga síðasta árs og útlit væri fyrir að hið sama sé upp á teningnum núna.

Greint var frá því á forsíðu Fréttablaðsins í dag að í undirbúningi hjá Landspítalanum eru hagræðingaraðgerðir sem miða að því að lækka rekstarkostnað hans um 1,5 milljarð króna eins og kveðið er á um í fjárlögum næsta árs. Það þýðir að segja þyrfti upp allt að eitthundrað starfsmönnum. Málið var til umræðu á Alþingi í dag.

„Það er athyglisvert að þetta er annað árið í röð sem hæstvirtur fjármálaráðherra klúðrar fjárlagagerð hvað varðar Landspítalann. Í fyrra ollu fjárlagatillögur hans því að það varð líka upplausnarástand þá á Landspítalanum og þáverandi forstjóri spítalans hraktist úr starfi. Það er því spurning hvort fjármálaráðherra geti látið skipa sérstakan seturáðherra til að búa til fjárlagafrumvarp ef hann ræður ekki við það sjálfur,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag.

Fjármálaráðherra svaraði því til að auðvelt væri að gera sig breiðan og vísa allri ábyrgð á stöðunni í heilbrigðiskerfinu á hann og aðra ráðherra ríkisstjórnarinnar.

Bjarni bætti því við að þeir sem stóðu að síðustu ríkisstjórn hefðu skilið við heilbrigðiskerfið með þeim hætti að slæmu áhrifanna gæti enn.

„Ég bara minni á að þetta er sama fólkið og er að æsa sig hér yfir stöðunni sem skar niður um tæpa þrjátíu milljarða á Landspítalanum og það hefur afleiðingar. Við erum enn að glíma við þær afleiðingar,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.

Bjarni sagði að vissulega væri til skoðunar að auka fjárveitingar til spítalans en benti jafnframt á að aldrei hafi meiri fjármunir verið settir í heilbrigðiskerfið en á þessu ári.

„En síðan kemur það í ljós þegar að það líður undir lok þessa árs að Landspítalinn er nokkuð langt frá því að halda sig innan fjárheimilda sem er alvarlegt mál. Vegna þess að hér er fjárveitingarvaldið og því miður er það svo, að því er virðist, að Landspítalinn er ekki að standast áætlanir á grundvelli þeirra fjárheimilda sem hann hefur á þessu ári,“ sagði Bjarni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×