Lífið

Segir Bill Cosby hafa nauðgað henni fyrir 32 árum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Ofurfyrirsætan Janice Dickinson segir í viðtali við Entertainment Tonight að grínarinn Bill Cosby hafi nauðgað sér árið 1982.

Janice, sem nú er 59 ára, segist fyrst hafa hitt spéfuglinn, nú 77 ára, þegar umboðsmaður hennar kom á fundi þeirra á milli til að ræða um mögulegt hlutverk fyrir fyrirsætuna í skemmtiþættinum The Cosby Show. Þau hittust síðan aftur eftir að Janice hafði farið í meðferð en þá bauð grínarinn henni hlutverkið sem þau höfðu rætt á fundinum.

Þá bauð Cosby henni líka til Lake Tahoe í Bandaríkjunum til að horfa á uppistand með honum. Janice segir að hann hafi gefið henni vínglas og verkjalyf því hún þjáðist af tíðarverkjum.

„Ég vaknaði næsta dag og var ekki í náttfötunum mínum og ég man eftir að hafa hugsað, áður en ég leið út af, að ég hefði verið kynferðislega misnotuð af þessum manni. Það síðasta sem ég man var Bill Cosby í náttslopp. Síðan fór hann úr náttsloppnum og lagðist ofan á mig. Og ég man eftir miklum sársauka. Næsta morgun vaknaði ég í engum náttfötum og það var sæði á milli fótleggja minna," segir hún í viðtali við Entertainment Tonight.

Janice segist hafa reynt að skrifa um atvikið í sjálfsævisögu sinni No Lifeguard on Duty: The Accidental Life of the World's First Supermodel sem kom út árið 2002. Þá þvinguðu lögfræðingar Cosby hana til að gera það ekki að hennar sögn.

„Ég er að gera þetta núna því það er hið rétta í stöðunni og af því þetta kom fyrir mig og þetta er sönn saga. Ég trúi öllum hinum konunum," segir Janice. 

Greint var frá því fyrir stuttu að þrettán konur hefðu sakað Cosby um nauðgun en lögmaður grínarans hefur sagt þessar ásakanir tilhæfulausar.


Tengdar fréttir

Cosby afboðar sig eftir ásakanir um nauðganir

Búið er að afboða komu Bill Cosby, leikara og grínista, í sjónvarpsþáttinn Late Show með David Letterman á CBS. Talið er að það tengist ásökunum um kynferðislegt ofbeldi og nauðgunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×