Akraborgin- Aron Jó: Vil komast aftur í bandaríska landsliðið
Aron Jóhannsson, leikmaður Werder Bremen og bandaríska landsliðsins í fótbolta er kominn aftur af stað eftir mikla bekkjarsetu undanfarna mánuði. Hann hefur verið í byrjunarliði Bremen í undanförnum leikjum og vonast nú til að það opni dyrnar í bandaríska landsliðið á nýjan leik.