Fréttir

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Bjóða út sorp­hirðu í Breið­holti til sex ára

Borgarstjórn hefur samþykkt að hefja útboð afmarkað sorphirðu við heimili í Breiðholti í tilraunaskyni. Samkvæmt tillögu er gert ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til sex ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára og geti samtals orðið til átta ára.

Innlent
Fréttamynd

Reglur um dvalar­leyfi hertar og filipps­eyskar au pair úr sögunni

Erlendir ríkisborgarar munu almennt þurfa að dvelja á Íslandi í sex ár í stað fjögurra áður en þeir öðlast rétt á ótímabundnu dvalarleyfi ef frumvarpsdrög dómsmálaráðherra ná fram að ganga. Þá verður hætt að veita dvalarleyfi til au pair sem koma utan Evrópska efnahagssvæðisins. Einnig er lagt til að skilyrði fjölskyldusameininga verði þrengd og dvalarleyfi veitt til þolenda vinnumarkaðsbrota.

Innlent
Fréttamynd

Á­rekstur við Hamra­borg

Árekstur varð á suðurleið á Hafnarfjarðarvegi við Hamraborg í Kópavogi um klukkan hálf fimm. Einn var fluttur á sjúkrahús til nánari skoðunar. 

Innlent
Fréttamynd

Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur

Innviðaráðherra hefur gert veigamiklar breytingar á reglum um leigubifreiðaþjónustu. Meðal breytinga er að próftaka fer nú fram án utanaðkomandi aðstoðar, leigubifreiðastöðvar eiga að halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir og munu leigubifreiðar fá litaðar númeraplötur.

Innlent
Fréttamynd

Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata

Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í þingkosningum þar í landi þótt mánuður sé til kosninga. Kannanir benda til þess að kjósendur Demókrata séu duglegri að kjósa snemma en í síðustu forsetakosningum.

Erlent
Fréttamynd

Upp­sagnir hjá Kletta­bæ

Klettabær, sértækt búsetuúrræði til langs- og skamms tíma, hefur sagt upp 28 starfsmönnum. Breytingarnar tengjast því að einhverjir skjólstæðingar eru á leið í önnur úrræði. Framkvæmdastjórinn segir þetta þungbært skref.

Innlent
Fréttamynd

Ingó veðurguð hafði betur í Lands­rétti

Landsréttur hefur dæmt ummæli fimmtugrar konu í garð Ingólfs Þórarinssonar, Ingós veðurguðs, dauð og ómerk og gert henni að greiða Ingólfi 350 þúsund krónur auk einnar milljónar króna í málskostnað. Í ummælum sínum gerði konan því skóna að Ingólfur legði það í vana sinn að nauðga ungum konum og beita þær ofbeldi.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún til­búin í að­gerðir

Kristrún Frostadóttir segir ríkisstjórnina reiðubúna til að tamarka hækkanir á krónutölugjöldum og gjaldskrám ríkisstofnana við 2,5 prósent ef allir geri sitt og kjarasamningar halda. Þetta tilkynnti hún í ræðu á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í dag.

Innlent
Fréttamynd

Inga vildi alls ekki svara spurningum frétta­manns

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, neitaði að svara spurningum fréttamanns þegar hún var spurð út í mál Guðmundar Inga Kristinssonar. Hún sagðist þó ekki hafa komið nálægt umdeildum skilaboðum sem fyrrverandi aðstoðarkona Guðmundar Inga sendi á hann.

Innlent
Fréttamynd

Væntingar um út­spil tengt gjalda­hækkunum

Einungis vika er til stefnu til að bregðast við forsendubresti kjarasamninga og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að væntingar séu um útspil frá stjórnvöldum er varðar gjaldskrárhækkanir. Ekkert svigrúm sé í raun til staðar og tvísýnt með framhaldið. Formaður VR segist ekki bjartsýn.

Innlent
Fréttamynd

Kveður svefnlyfin eftir á­tján ára notkun

81 árs kona, sem tók svefnlyf að staðaldri í nær átján ár, segist hafa orðið mjög hissa á því hversu auðvelt reyndist að draga úr notkuninni með réttum stuðningi. Samhliða því hafi orðið mikil breyting á bæði andlegri og líkamlegri líðan hennar. Yfir þriðjungur áttatíu ára og eldri notar svefn- og slævandi lyf hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“

Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir að útboð vegna byggingar stúku við Kórinn, sem nú hefur verið dæmt ólöglegt, beri öll merki þess að Kópavogsbær hafi flýtt sér of mikið við gerð þess. Engin tilviljun sé að fyrsta skóflustunga hafi átt að vera tekin daginn fyrir kjördag í vor.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert svig­rúm í tengslum við kjara­samninga og tví­sýnt með fram­haldið

Einungis vika er til stefnu til að bregðast við forsendubresti kjarasamninga og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að væntingar séu um útspil frá stjórnvöldum er varðar gjaldskrárhækkanir. Ekkert svigrúm sé í raun til staðar og tvísýnt með framhaldið. Formaður VR segist ekki bjartsýn. Rætt er við Bjarna Benediktsson í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Innlent
Fréttamynd

Snið­ganga banda­menn á NATO-fundum

Ríkisstjórn Donalds Trump er að sniðganga nokkra mikilvæga bandamenn Bandaríkjanna og evrópsk hergagnafyrirtæki fyrir fund sem halda á í mánuðinum. Fundurinn á að snúast um framtíð Atlantshafsbandalagsins en mörgum af þeim aðildarríkjum sem verja hvað mestu til varnarmála hefur ekki verið boðið á hann.

Erlent
Fréttamynd

„Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“

3.800 símtöl bárust eitrunarmiðstöð Landspítalans á síðasta ári. Forstöðumaður miðstöðvarinnar segir töluna háa miðað við höfðatölu og tekur fram að efni og tíðni símtalanna fari gjarnan eftir árstíðum og endurspegli það sem er í gangi í þjóðfélaginu hverju sinni. Til að mynda berast nú ógrynni símtala vegna svokallaðra squishy toys. 

Innlent