Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sérlega varasamar aðstæður verði í kvöld milli Hafnar og Djúpavogs vegna hvassviðris. Leiðin sé þekkt fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda. Veður 18.10.2026 13:55
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Gul skriðuviðvörun hefur verið gefin út fyrir Strandir, Norðanverða Vestfirði og Sunnanverða Vestfirði en þar er mestu uppsafnaðri úrkomunni spáð. Tvær lægðir áttu að fara yfir landið um helgina, sú fyrri í gær og sú seinni í dag. Ekki er talin hætta í byggð en skriðuföll geta náð að vegum og öðrum samgöngumannvirkjum. Veður 18.10.2026 07:30
Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Í dag er spáð sunnan og suðvestan stormi og eru líkur á mikilli ölduhæð nærri ströndum sunnan og vestan til á landinu. Gular viðvaranir eru ýmist í gildi eða taka gildi síðar í dag. Varað er við vegalokunum eftir hádegi á milli Hafnar og Reyðarfjarðar. Veður 18.10.2026 07:22
Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veðurstofan hefur gefið út bæði gular og appelsínugular viðvaranir á stærstum hluta landsins á miðvikudag. Von er á stormi og stórhríð og hefur veðurfræðingur sagt að gera megi ráð fyrir að meðal annars verði raskanir á flugi. Veður 12.10.2026 13:52
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Skil fóru yfir landið í nótt með hvassviðri og stormi sem fara norður af landinu um hádegisbil. Í dag og á morgun er spáð skúrum en á miðvikudag er von á annari lægð og þá er spáð snjókomu fyrir norðan. Veður 12.10.2026 07:20
Suðaustan stormur og gul viðvörun Búast má við suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og suðvestanlands með rigningu í kvöld. Gul viðvörun vegna storms tekur gildi klukkan tíu í kvöld á Suðurlandi. Veður 11.10.2026 07:36
Milt og blautt í dag Við erum á milli veðrakerfa í dag samkvæmt veðurfræðingi og hæg breytileg átt því ríkjandi og dálitlar skúrir í flestum hlutum landsins. Hitinn er frá þremur og upp í tíu stig. Veður 10.10.2026 07:25
Allmikil lægð þokast meðfram landinu Vindar verða fremur hægir í dag en norðan- og norðvestanstrekkingur úti við norðvestur- og suðvesturströndina. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands fylgir þessu rigning með köflum eða skúrir. Veður 9.10.2026 07:03
Mikil rigning og allhvass vindur Skil eru á leið yfir landið og með þeim fylgir allhvass eða hvass vindur af suðaustri og mikil rigning sunnan- og vestantil á landinu. Það lægir seinnipartinn. Veður 8.10.2026 07:00
Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Smálægð skammt norðvestur af landinu stjórnar veðrinu í dag og verður áttin því suðlæg eða breytileg. Það fyrsti allvíða í nótt en hiti yfir daginn verður á milli tveggja og níu stiga. Veður 7.10.2026 06:51
Næturfrost víða Kraftlitlar smálægðir eru á sveimi í kringum landið og verður því áttin breytileg í dag samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Það frysti víða í nótt. Veður 6.10.2026 06:59
Slydda og snjókoma til fjalla Búast má við rigningu í norðausturfjórðungi landins en bjartviðri og norðanátt upp á þrjá til átta metra á sekúndu á vestanverðu landinu samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Veður 5.10.2026 06:31
Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægðin sem olli úrhelli í gær er hvergi á förum og mun áfram stýra veðrinu víða um landið í dag. Þá er víða væta og vestan norðvestan 8 til 13 metrar á sekúndu en búast má við snarpari vindi syðst á landinu og getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að ferðast undir Mýrdals- og Öræfajökli svo dæmi sé tekið. Veður 4.10.2026 07:15
Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Það er blautur laugardagur í vændum og lægð sendir regnsvæði sitt yfir allt landið, að sögn veðurfræðings. Spáð er suðaustan og sunnan átta til þrettán metrum á sekúndu með rigningu í dag og gert ráð fyrir talsverðri úrkomu á Suður- og Vesturlandi fram undir kvöld. Hiti á bilinu sjö til tólf stig. Veður 3.10.2026 08:30
Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna suðaustan storms á norðaustanverðu landinu í nótt og fram á morgundaginn. Viðvaranir eru þegar í gildi á Suðausturlandi og miðhálendinu vegna mikillar úrkomu. Veður 30.9.2026 08:48
Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Auknar líkur eru á skriðuföllum á Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og á miðhálendinu fram á aðfaranótt föstudags. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Veðurstofunni. Þar kemur fram að talsverðri til mikilli úrkomu sé spáð, einkum á Suðausturlandi, við jökla á Suðurlandi, á sunnanverðu miðhálendinu og sunnanverðum Austfjörðum fram á fimmtudagskvöld. Veður 30.9.2026 07:29
Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Gular veðurviðvaranir taka gildi á Suðausturlandi og miðhálendinu klukkan tvö í nótt vegna mikillar úrkomu. Viðvaranirnar verða í gildi til klukkan þrjú síðdegis á morgun, miðvikudaginn 30. september. Veður 29.9.2026 17:45
Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Búast má við talsverðri úrkomu á norðvesturhluta landsins, rigningu á láglendi en slyddu eða snjókomu til fjalla. Úrkomulítið verður annars staðar á landinu, þó má búast við vætu á köflum suðaustan- og austanlands. Hiti verður á bilinu þrjú til ellefu stig, svalast á Vestfjörðum. Veður 27.9.2026 08:03
Enn hætta á skriðum Enn er hætta á skriðum og grjóthruni á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum og nokkuð hefur verið um grjót sem hefur fallið á vegi. Mikil úrkoma hefur verið á svæðinu síðan á fimmtudag og spáð er áframhaldandi úrkomu fram á mánudag. Veður 26.9.2026 11:48
Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Gera má ráð fyrir talsverðri úrkomu um norðvestanvert landið í dag en slyddu og snjókomu til fjalla. Skýjað verður með köflum sunnan- og austantil og sums staðar væta. Hiti verður á bilinu þrjú til tólf stig, svalast á Vestfjörðum en mildast á landinu austanverðu. Veður 26.9.2026 07:47
Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra vegna storms og mikillar rigningar. Viðvaranirnar verða í gildi í allan dag og fram á kvöld. Veður 25.9.2026 07:31
Rigning og vindur Í dag er vaxandi austanátt, víða 13 til tuttugu metrar á sekúndu með morgninum en átján til 25 metrar á sekúndu sunnanlands fram að hádegi. Rigning um allt land og talsverð eða mikil úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum fram á kvöld. Veður 24.9.2026 06:40
Gular viðvaranir á morgun Í fyrramálið taka gular viðvaranir gildi á Suður- og Austurlandi vegna austan storms og mikillar rigningar. Vindhviður gætu náð 35 metrum á sekúndu. Veður 23.9.2026 06:57
Rigning, rigning, rigning Það gengur í suðvestan tíu til átján metra á sekúndu í dag. Víða skúrir, en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast austanlands. Dregur úr vindi í kvöld. Veður 22.9.2026 06:54