Fótbolti

Sé kannski eftir því síðar að hafa hafnað Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Liverpool og Real Madrid mætast í Meistaradeild Evrópu í kvöld en fyrirliði fyrrnefnda liðsins, Steven Gerrard, var spurður í gær hvort að hann sæi eftir því að hafa ekki gengið til liðs við Madrídinga þegar tækifærið bauðst.

„Það er mikill heiður að maður sé orðaður við jafn stórt félag og Real Madrid. Ég hef fengið nokkur tækifæri til að fara til félagsins á ferlinum en ávallt hafnað vegna tengingar minnar við uppeldisfélagið í heimabænum mínum,“ sagði Gerrard á blaðamannafundi í gær.

„Kannski mun ég sjá eftir því síðar að hafa ekki stokkið á þetta - að taka nýjum áskorunum í nýju landi en ég hefði séð enn meira eftir því að hafa yfirgefið Liverpool, félagið sem ég elska.“

„Ég er mikill aðdáandi Real Madrid enda sérstakt félag. En Liverpool verður alltaf í fyrsta sæti hjá mér.“


Tengdar fréttir

Bale verður ekki með gegn Liverpool

Varnarmenn Liverpool munu ekki þurfa að glíma við Gareth Bale í leiknum gegn Real Madrid í Meistaradeildinni á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×