Lífið

Scorsese gerir þátt með Jagger

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Martin Scorsese
Martin Scorsese
Staðfest hefur verið að leiknir þættir um tónlistariðnaðinn í New York á áttunda áratugnum verða gerðir og sýndir á HBO en á bak við þá eru engir aðrir en leikstjórinn Martin Scorsese og rokkarinn Mick Jagger.

Þátturinn hefur verið í bígerð frá árinu 2011 og mun leggja áherslu á tónlistariðnaðinn á þeim tíma sem pönkið og diskóið var á uppleið og saurlifnaðinn sem því fylgdi, samkvæmt Rolling Stone. Scorsese mun leikstýra fyrsta þættinum og framleiða ásamt Mick Jagger.

Terrence Winter mun einnig framleiða en hann er meðal annars þekktur fyrir að framleiða The Sopranos og Boardwalk Empire.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×