Fótbolti

Sara Björk lék allan leikinn í jafntefli Rosengård

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sara Björk var í byrjunarliði Rosengård.
Sara Björk var í byrjunarliði Rosengård.
Rosengård  og Piteå gerðu 2-2 jafntefli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu kvenna en Sara Björk Gunnarsdóttir  lék allan leikinn fyrir Rosengård í dag.

Öll mörk leiksins komu á fyrstu 26 mínútum leiksins og var heldur mikið fjör á fyrsta hálftímanum.

Rosengård  er í efsta sæti deildarinnar með 35 stig, einu stigi fyrir ofan Eskilstuna United sem á leik til góða. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×