Innlent

Sandra Rán nýr formaður SUF

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sandra Rán Ásgrímsdóttir, 26 ára sjálfbærniverkfræðingur er nýr formaður Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF). Sandra Rán er fimmta konan til að gegna embætti formanns SUF í 79 ára sögu sambandsins.

„Það er mikill heiður að vera kjörinn formaður og ég er spennt að fá að takast á við þau verkefni sem bíða mín“ segir Sandra í tilkynningu frá sambandinu en hún var kjörin á 42. sambandsþingi SUF um helgina. Sandra er fimmta konan til að gegna embætti formanns SUF en áður hafa Siv Friðleifsdóttir, Dagný Jónsdóttir, Bryndís Gunnlaugsdóttir og Ásta Hlín Magnúsdóttir gegnt embætti formanns SUF.

„Í gegnum árin hef ég öðlast góða þekkingu á fjölbreyttu starfi SUF, styrkleikum þess og veikleikum. Við búum yfir fjölbreyttum hópi ungmenna um allt land og þessi hópur gefur okkur góða yfirsýn yfir málefni sem snúa að ungu fólk. Ég hlakka til að styrkja tengslin við allt þetta fólk og vinna markvisst að því efla starf SUF, bæði inn á við og út á við.“ segir Sandra í tilkynningunni.

Sandra Rán útskrifaðist með B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands 2013 og meistaragráðu í sjálfbærniverkfræði frá háskólanum í Cambridge 2015. Hún starfar í dag sem verkfræðingur. Sandra er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði en hefur búið í Reykjavík og erlendis frá 2010. Hún hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum innan SUF síðustu ár, verið ritari, gjaldkeri og formaður alþjóðanefndar. Hún hefur sótt viðburði erlendis fyrir sambandið og er varaformaður Ungliðahreyfingar norrænna miðjuflokka (NCF). Þá á hún sæti í miðstjórn og hefur verið á lista flokksins í Suðurkjördæmi í síðustu tveimur þingkosningum.

 

Aðrir sem voru kosnir í aðastjórn SUF á nýliðnu þingi eru;

  • Páll Marís Pálsson
  • Guðmundur Hákon Hermansson
  • Fjóla Hrund Björnsdóttir
  • Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
  • Hinrik Bergsson
  • Róbert Smári Gunnarsson
  • Snorri Eldjárn Hauksson
  • Tanja Rún Kristmannsdóttir
  • Bjarni Dagur Þórðarson
  • Gauti Geirsson
  • Hildur Guðbjörg Benediktsdóttir
  • Marta Mirjam Kristinsdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×