Lífið

Sandkassi fyrir börnin í nýrri verslun

Freyr Bjarnason skrifar
Bjarni Þór og Dóra Sif, ásamt dóttur sinni, hjá sandkassanum sem hefur slegið í gegn eftir að búðin var opnuð.
Bjarni Þór og Dóra Sif, ásamt dóttur sinni, hjá sandkassanum sem hefur slegið í gegn eftir að búðin var opnuð. Vísir/GVA
Bjarni Þór Viðarsson, atvinnumaður hjá danska knattspyrnuliðinu Silkeborg, kærasta hans, Dóra Sif Ingadóttir, og móðir hennar, Drífa Hilmarsdóttir, opnuðu á dögunum barnafatabúðina Bíumbíum.

Hún hefur þá sérstöðu að bjóða upp á sandkassa frá fyrirtækinu Krummu fyrir börnin sem þangað koma með foreldrum sínum. Í honum er botnfylli af sandi, svo að börnin verði nú ekki öll útötuð í honum.

„Útgangspunkturinn þegar við ákváðum að opna búð var að við vildum vera með aðstöðu fyrir börnin svo að foreldrarnir gætu verslað í rólegheitum,“ segir Dóra Sif, sem á sjálf tveggja og hálfs árs dóttur með Bjarna Þór.

„Fólki fannst við brjáluð þegar við vorum að útskýra þetta með sandkassann áður en við opnuðum en þetta virkar fáránlega vel og foreldrar eiga oft erfitt með að koma börnunum sínum út aftur,“ segir hún. „Slagorðið okkar er að verslunin sé fyrir mikilvægasta fólkið. Við viljum skapa upplifun líka fyrir börn að koma hingað.“

Hvað staðsetningu búðarinnar varðar í Síðumúla 13 lögðu þau áherslu á að hægt væri að aka alveg upp að henni, þannig að auðveldara væri fyrir foreldrana að komast þangað með lítil börn.

Í Bíumbíum fást skandinavísk föt í mildum litum fyrir börn á aldrinum 0 til 8 ára og franskir fylgihlutir, þar á meðal skart í hárið, inniskór, vegglímmiðar og Barbapabba-næturljós. „Við höfum fengið ótrúlega góðar viðtökur og fólk hefur verið rosalega ánægt,“ segir Dóra Sif, sem fer aftur út til Danmerkur eftir jól með Bjarna Þór. Mamma hennar annast reksturinn í fjarveru þeirra.

„Mamma er búin að vera að setja upp búðir frá því ég man eftir mér. Ég var alltaf með henni í vinnunni og fékk rosalega mikinn áhuga á þessu. Núna langaði okkur að prófa að gera eitthvað sjálfar,“ segir hún hress en mamma hennar hefur m.a. starfað í Pennanum og Epal.

Sjálf nýtir Dóra Sif í búðinni reynslu sína af kaupum á vönduðum vörum í Danmörku og í Belgíu, þar sem Bjarni Þór hefur einnig spilað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×