Fótbolti

Sanchez mætti með hundana á æfingu | Mynd

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/getty
Síle tapaði í dag fyrir Brasilíu í vináttulandsleik, en leikið var á Emirates á Englandi. Alexis Sanchez kannast þar við sig, en hann er leikmaður Arsenal.

Sanchez var keyptur frá Barcelona í sumar, en hann hefur staðið sig vel með Arsenal í deildinni í vetur. Arsenal er í þriðja sæti deildarinnar í mikilli baráttu um Meistaradeildarsæti.

Sanchez, sem er skærasta stjarna Síle, vildi ekki skilja hundana sína eftir heima þegar hann fór á æfingu á London Colney æfingasvæðinu. Þetta eru engir smáhundar.

Myndir af hundunum og Sanchez má sjá hér fyrir neðan, en vonandi var þó enginn hundur í Sanchez á æfingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×