Innlent

Samþykkja að vísa eflingu atvinnulífs Vestfjarða í nefnd

Sveinn Arnarsson skrifar
Ísafjarðarbær er stærsta sveitarfélagið á Vestfjörðum.
Ísafjarðarbær er stærsta sveitarfélagið á Vestfjörðum. vísir/pjetur
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að skipa nefnd undir forystu forsætisráðuneytisins sem vinni aðgerðaáætlun fyrir Vestfirði.

Lagt er til að nefndin starfi í nánu samstarfi við önnur ráðuneyti og í samráði við svokallaðan stýrihóp ráðuneytanna um byggðamál.

Á þessu kjörtímabili var einnig sams konar hópur að störfum til að efla byggð á Norðvesturlandi. Sú nefnd skilaði af sér tugum tillagna til forsætisráðuneytisins fyrir nokkrum misserum en lítill hluti þeirra tillagna hlaut brautargengi.

Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveinsson, ráðherra byggðamála og fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis, segir málið brýnt. Vestfirðir hafi verið í ákveðinni varnarbaráttu og fólki hefur fækkað á svæðinu í heild. 

„Þetta er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og í framhaldi af Norðvesturnefndinni svokölluðu. Vestfirðir hafa um árabil búið við fólksfækkun þó nokkur batamerki hafi sést undanfarið, til dæmis á sunnanverðum fjörðunum,“ segir Gunnar Bragi.

„Nefndin mun að uppistöðu til verða skipuð heimamönnum enda þekkja þeir best til. Þá mun farvegur sóknaráætlunar Vestfjarða verða nýttur fyrir þær hugmyndir sem koma. Samhliða þessu hefur ríkisstjórnin lagt áherslu á að treysta áfram innviði í fjórðungnum, svo sem í samgöngumálum.“

Gísli Halldór Halldórsson
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segist fagna þessu framtaki ríkisstjórnarinnar. Nú þegar séu til margvíslegar tillögur og gögn sem nefndin geti unnið úr og skilað sem tillögum til úrbóta til ríkisstjórnarinnar. 

„Hér hefur verið unnið mikið verk á síðustu árum og ég fagna því að þessi nefnd sé sett á laggirnar,“ segir Gísli Halldór. 

„Ég geri fastlega ráð fyrir því að heimamenn verði fengnir að borðinu til að móta tillögur til framfara fyrir fjórðunginn.“

Vestfirðir eru í raun þrískipt svæði í dag; sunnanverðir Vestfirðir, Ísafjarðardjúp og Strandir. Miklar vegalengdir skilja svæðin að og samgöngur eru erfiðar milli þeirra að vetrarlagi. 

Í tilkynningu forsætisráðuneytisins er ekki gefinn langur tími fyrir nefndina. Lagt er til að hún skili tillögum til ríkisstjórnarinnar eigi síðar en 31. ágúst næstkomandi. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júní




Fleiri fréttir

Sjá meira


×