Bílar

Samhæft BMW-drift

Finnur Thorlacius skrifar
Það að drifta bíl er ekki endilega fyrir einn ökumann í einu og það sanna þessir 5 ökumenn á aflmiklum BMW M235i bílum. Vettvangurinn er hringtorg í Höfðaborg í S-Afríku sem hefur verið lokað, enda ekki mjög æskilegt að leggja í svona áhættuatriði í miðri umferð.

Það voru ekki neinir aukvisar sem fengnir voru til þess að aka þessum bílum því á meðal þeirra eru Rhys Millen og Dai Yoshihara og hinir þrír eru engir aumingjar í asktri heldur, eins og hér sést.

Allt virðist þetta afar auðvelt en miklir hæfileikar og talsverð æfing liggur að baki. Það er ekki frá því að þetta minni á hina feykivinsæli íþróttagrein samhæft listsund kvenna, enda þokkinn álíka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×