Tónlist

Samdi Diamonds fyrir Rihönnu á fjórtán mínútum

Í viðtali við New York Times segir söngkonan Sia frá því að hún hafi samið lagið Diamonds, sem að Rihanna gerði frægt og hægt er að hlusta á hér að neðan, á fjórtán mínútum.

Rihanna breytti laginu ekki neitt við upptöku þess og þegar tökustjórinn Benny Blanco spilaði lagið í flutningi Rihönnu fyrir Siu í fyrsta sinn, hélt hún að hún væri sjálf að syngja.

„Ég held að hún hafi virkilega kunnað að meta lagið,“ segir Sia, meðal annars.

Sia, sem heitir fullu nafni Sia Furler, hefur samið smelli fyrir marga tónlistarmenn, meðal annars Beyonce, Flo Rida, David Guetta og Christinu Aguilera.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×