Lífið

Sálin með Þjóðhátíðarlagið í ár

Adda Soffia skrifar
Sállin
Sállin Vísir
Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns fær þann eftirsótta heiður að semja Þjóðhátíðarlagið 2015, en hátíðin fer fram í Herjólfsdalnum um Verslunarmannahelgina, 31. júlí til 2. ágúst.

Í fyrra átti Jón Jónsson Þjóðhátíðarlagið Ljúft að vera til, sem var eitt vinsælasta lag síðasta árs. Því má ætla að fyrst reynsluboltarnir í Sálinni semja lagið í ár, þá sé von á góðum sumarsmelli.

Þjóðhátíðarþyrstir Íslendingar geta því byrjað að telja niður í lagið sem frumflutt verður í byrjun sumars og til þess að gera biðina bærilegri þá er um að gera að rifja upp stemninguna í brekkunni frá því í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×