Bílar

Sala rafmagsbíla og jepplinga eykst mest í Evrópu

Finnur Thorlacius skrifar
Mesta aukning varð í sölu rafmagnsbíla, eins og þessa BMW i3 bíls.
Mesta aukning varð í sölu rafmagnsbíla, eins og þessa BMW i3 bíls.
Sala bíla í Evrópu hefur aukist um 6% það sem af er ári en miklar breytingar hafa orðið á því hvaða gerðir bíla Evrópumenn velja sér. Sem dæmi jókst sala rafmagnsbíla um 91% á fyrri helmingi ársins og sala jepplinga um 89%.

Sala lúxusbíla gengur einnig vel og í flokkunum lúxusbílar með coupe-lagi og mjög dýrir lúxusbílar hefur orðið 34% aukning í sölu. Í flokki lúxusjeppa varð 15% aukning og í flokki lúxusjepplinga varð 9% aukning. Mesta minnkun hefur orðið í flokkunum ódýrari bílar með coupe-lagi (26%), blæjubílar (12%) og smærri fjölnotabílar (9%).

Sjá má alla flokka bíla og hvernig þeim hefur farnast í samanburði við sölu síðasta árs hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×