Viðskipti innlent

Sala Landsbankans á Borgun „augljóst klúður“ að mati forsætisráðherra

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Vísir/Valli
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segir sölu Landsbankans á hlut bankans í Borgun „augljóst klúður“ en þetta kom fram í máli hans á Alþingi í dag þegar hann svaraði óundirbúinni fyrirspurn Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar, varðandi Borgunarmálið.

Árni Páll hefur kallað eftir því að sala bankans á Borgun verði rannsökuð og spurði hann forsætisráðherra hvort hann væri sammála sér í því að slík rannsókn færi fram. Sagði Árni Páll það mikilvægt að rekja atburðarásina í málinu þar sem framundan væri mikil sala ríkiseigna.

„Ég er sammála mati háttvirts þingmanns bæði varðandi mikilvægi þess að tryggja að ríkið fái sem mest fyrir þær eignir sem það ákveður að selja [...] og eins um að upplýsa þurfi um hvernig þetta gat gerst, niðurstaða sem er augljóst klúður,“ sagði Sigmundur Davíð.

Þá sagði forsætisráðherra að honum þætti eðlilegt að þingið myndi fylgja málinu eftir og fá svör við þeim spurningum sem Árni Páll hefur varpað fram og kvaðst Sigmundur styðja þingið í því.

Sala Landsbankans á 31,2 prósenta hlut í Borgun hefur verið gagnrýnd harðlega, ekki hvað síst seinustu vikur, eftir að í ljós kom að Borgun mun að öllum líkindum fá í sinn hlut milljarða greiðslur vegna yfirtöku Visa Inc. á Visa Europe. Ekkert kemur hins vegar í hlut Landsbankans þar sem bankinn setti ekki inn ákvæði í samninginn um að ef að kaupum á Visa Europe yrði myndi hann fá þær greiðslur.

Slíkt ákvæði var hins vegar að finna í samningi vegna sölu Landsbankans á hlut sínum í Valitor þremur vikum áður, en Arion banki keypti hlut bankans.

Landsbankinn segist ekki hafa vitað að Borgun gæti átt von á greiðslum vegna valréttar á Visa Inc. á Visa Europe en bankinn hyggst að eigin frumkvæði skila Alþingi greinargerð um málið.


Tengdar fréttir

Landsbankinn vissi að Visa gæti tekið yfir Visa Europe

Landsbankinn hafði upplýsingar um valrétti en hafði engar upplýsingar um að Borgun hf. gæti notið hagsbóta af yfirtöku á VISA Europe. Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir það hafa legið fyrir síðar, eftir söluna á bréfunum í Borgun hf.

Skilyrði eftirlitsins höfðu ekki áhrif á sölu Borgunar

"Við fáum ekki séð að nein skilyrði sem hvíldu á Landsbankanum af hálfu Samkeppniseftirlitsins hafi haft áhrif á verð eða skilmála þessarar sölu,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, um sölu Landsbankans á kortafyrirtækinu Borgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×