Bílar

Sala bíla í júní jókst um 31,1%

Finnur Thorlacius skrifar
Bílasala hefur aukist umtalsvert á árinu, en eins og á síðustu árum er stór hluti sölunnar til bílaleiga.
Bílasala hefur aukist umtalsvert á árinu, en eins og á síðustu árum er stór hluti sölunnar til bílaleiga.
Sala á nýjum fólksbílum frá 1. til 30. júní jókst um 31,1% en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 2.576 talsins. Þeir voru 1.965 í sama mánuði í fyrra. Er það aukning um 611 bíla.

Aukning í nýskráningum frá 1. janúar til og með 30. júní miðað við sama tímabil á fyrra ári er 37,7% en samtals hafa verið nýskráðir 8.784 fólksbílar það sem af er ári, segir í frétt frá Bílgreinasambandinu. Sala bíla til bílaleiga og til almennings hefur aukist verulega á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×