Innlent

Sala á jólatrjám gengið vel

Sala á jólatrjám hefur gengið vel í desember en búist er við því að hún nái hámarki um helgina.

Kristinn Einarsson framkvæmdastjóri hjá Blómavali segir að normannsþinur sé vinsælasta jólatréð. Hann á von á því að salan nái hámarki um helgina.

„Ég reikna með því að helgin kannski sunnudagur verði stærsti dagurinn. Næsta vika þá höfum við mánudag og þriðjudag en ég reikna með því að flestir verði búnir að tryggja sér jólatré á sunnudag enda sýnist mér framboðið vera minna í ár ef eitthvað er,“ segir Kristinn Einarsson . 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×