Lífið

Sagði ekki að Melissa væri feit

Frænkurnar Melissa og Jenny McCarthy
Frænkurnar Melissa og Jenny McCarthy Vísir/Getty
Jenny McCarthy hefur stigið fram og neitað því opinberlega að hún hafi kallað frænku sína, leikkonuna Melissu McCarthy feita áður en hún varð fræg.

Melissa McCarthy er best þekkt fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Bridesmaids.

„Það er einhver fáránleg kjaftasaga í gangi um að ég hafi sagt Melissu að hún yrði að grenna sig til þess að komast inn í bransann. Það gæti ekki verið fjær sannleikanum,“ sagði Jenny í viðtali við tímaritið People.

„Henni hefur tekist að láta alla sína drauma rætast með þrotlausri vinnu og svo býr hún yfir miklum hæfileikum. Ég hef eingöngu hvatt hana og stutt og óskað henni alls hins besta.“

„Það er særandi að búa til kjaftasögur til þess fallnar að koma fjölskyldumeðlimum upp á móti hver öðrum, sérstaklega þegar um er að ræða konur,“ bætti hún við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×