Innlent

Sæði Kölska var vinsælast

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Páll Þórarinsson, sæðistakari með einn skammt í glasi. Skammturinn dugar í 20–30 ær.
Páll Þórarinsson, sæðistakari með einn skammt í glasi. Skammturinn dugar í 20–30 ær. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Sæðistöku á Sauðfjársæðingastöð Suðurlands í Þorleifskoti í Laugardælum austan við Selfoss er lokið en hún hófst þann 1. desember. Alls voru sendir skammtar í liðlega 22.000 ær sem er um 1000 skömmtum fleira en í fyrra. Því miður gekk illa að koma sæðinu á áfangastaði vegna ótíðar og því má þakka fyrir ef næst sami fjöldi af sæddum ám og í fyrra.

Sæðistakan úr hrútunum stóð yfir frá 1. desember til 21. desember. Ljósmynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson. Alls voru sendir út 22.000 sæðisskammtar í ær á Suðurlandi.Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Nokkrir hrútanna voru erfiðir í sæðistöku eins og t.d. Bursti frá Hesti sem gaf einungis sæði fyrstu dagana. Drumbur frá Bjarnastöðum gaf lítið sæði fyrri hluta tímabilsins en fór heldur skánandi þegar leið á. Sá hrútur sem mesta notkun fékk var Kölski frá Svínafelli en sæði úr honum var sent í 2065 ær.

Næstir komu Jóker frá Laxárdal með útsent sæði í 1795 ær, Garri frá Stóra Vatnshorni með í 1.715 ær, Danni frá Sveinungsvík með sæði í 1.555 ær og Höfðingi frá Leiðólfstöðum með sæði í 1.540 ær. Sá kollótti hrútur sem mesta notkun fékk var Radix frá Hjarðarfelli með útsent sæði í 965 ær. Þetta kemur m.a. fram á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×