Lífið

Ryan Gosling fór í kleinu þegar hann þurfti að horfa á gömlu dansmyndböndin

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Hann kann allt þessi.
Hann kann allt þessi. Skjáskot
Leikaranum Ryan Gosling er margt til lista lagt og hefur hann meðal annars vakið athygli fyrir dans- og sönghæfileika sína í kvikmyndinni La La Land.

Danshæfileikarnir virðast þó ekki koma af sjálfu sér og hefur Gosling verið að dansa frá unga aldri. Meðal annars keppti hann í dansi á tíunda áratugnum, íklæddur silfruðum hammer buxum. Myndbönd af dansandi Gosling hafa flakkað um netið í nokkurn tíma.

Gosling var gestur í spjallþætti Graham Norton á BBC í gær og fór heldur betur hjá sér þegar hann þurfti að horfa á myndbönd af glæstum ferli sínum sem dansari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×