Innlent

Rútuslys á Mýrdalssandi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Rútan hafnaði í skurði um tíu kílómetrum frá Hjörleifshöfða.
Rútan hafnaði í skurði um tíu kílómetrum frá Hjörleifshöfða. Vísir/Pjetur
Fimm eru slasaðir eftir að smárúta með ellefu farþega fór út af þjóðveginum við Mýrdalssand. Björgunarsveitir frá Vík, Klaustri og Álftaveri hafa verið kallaðar út vegna rútuslyssins.

Smárútan fór útaf veginum og í skurð um 10 kílómetrum austan við Hjörleifshöfða. Enginn hinna slösuðu telst alvarlega meiddur.

Sjúkralið og björgunarsveitir eru á staðnum og verið er að veita hinum slösuðu þá aðstoð er þeir þurfa og flytja af vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×