Innlent

Rúmlega milljarði varið til styttingar á biðlistum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Kristján Þór Júlíusson er heilbrigðisráðherra.
Kristján Þór Júlíusson er heilbrigðisráðherra. vísir/pjetur
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag áætlun um átak til að stytta biðlista eftir tilteknum skurðaðgerðum. Ríkisstjórnin hefur falið heilbrigðisráðherra í samvinnu við fjármálaráðherra að gera tillögur um fjármögnun slíks verkefnis. Áætlaður kostnaður er um 1.260 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Biðlistar eftir aðgerðum lengdust umtalsvert meðan á verkföllum heilbrigðisstarfsfólks stóð síðastliðinn vetur. Embætti landlæknis upplýsti heilbrigðisráðherra nýverið um biðtíma og fjölgun á biðlistum eftir tilteknum aðgerðum í kjölfar verkfallanna og gerði tillögu um sértækar aðgerðir til að takast á við brýnasta vandann.

Erindi heilbrigðisráðherra sem hann kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í dag byggist á tillögum Embættis landlæknis þar sem horft er bæði til biðtíma og sérstakrar áhættu sem leiðir af bið eftir aðgerð. Tillögurnar miða að því að stytta bið eftir augasteinsaðgerðum, gerviliðaaðgerðum á hné, gerviliðaaðgerðum á mjöðm og loks hjarta- og/eða kransæðamyndatöku.

Ef litið er til fjölda þeirra sem beðið höfðu lengur en þrjá mánuði samkvæmt biðlistum í júní síðastliðnum voru það 2.915 sem biðu eftir skurðaðgerð á augasteini, 598 biðu eftir gerviliðaaðgerð á hné, 338 eftir gerviliðaaðgerð á mjöðm og 102 biðu eftir hjarta- og/eða kransæðamyndatöku og eru þar kransæðavíkkanir meðtaldar. Þetta er fjölgun miðað við sama tíma árið 2014 og biðtíminn getur verið allt að þrjú ár.

Kostnaður við styttingu biðlista með fjölgun framangreindra aðgerða er áætlaður 1.165 milljónir króna en við þessa tölu bætist kostnaður vegna endurhæfingar og sjúkraþjálfunar auk heimahjúkrunar að fjárhæð 95 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×