Lífið

Rosalegur í áheyrnarprufu fyrir Game of Thrones

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Upptaka af áheyrnarprufu Jasons Momoa fyrir sjónvarpsþáttinn Game of Thrones er komin á netið en með myndbandinu landaði Jason hlutverki Khal Drogo í seríunni.

Í myndbandinu sést Jason sýna haka, stríðsöskur og dans sem ættað er frá Maori-ættbálkinum í Nýja-Sjálandi.

Jason er hins vegar ekki frá Nýja-Sjálandi heldur Havaí en neglir áheyrnarprufuna eins og sést í meðfylgjandi myndbandi.

Næst á dagskrá hjá leikaranum er að leika Aquaman í kvikmyndinni Batman v. Superman sem kemur í kvikmyndahús í maí árið 2016.

Jason Momoa.vísir/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×