Lífið

Ronda Rousey komin á fast

Samúel Karl Ólason skrifar
Ronda Rousey.
Ronda Rousey. Vísir/Getty
Ein besta íþróttakona heims er í sambandi með UFC bardagakappanum Travis Browne. Eftir miklar vangaveltur síðustu misseri staðfesti Browne þetta í dag. Vangavelturnar byrjuðu eftir að Jenna Renee, fyrrverandi eiginkona Browne, sagði Rousey vera með manninum sem lamdi sig.

Ronda „Rowdy“ Rousey er ósigruð á ferli sínum í UFC og hefur unnið tólf bardaga. Þau Rousey og Browne æfa í sömu æfingabúðunum en Brown berst í þungavigtarflokki UFC.

Travis Browne.Vísir/Getty
Browne sagði í viðtali í MMA Hour í dag að Rousey væri konan sín og að hann væri maðurinn hennar. Hann sagði ekkert stefnumótastúss vera í gangi, þau væru bara saman.

Orðrómar hafa verið á kreiki frá því í ágúst, eftir að Jenna Renee, fyrrverandi eiginkona Browne, sagði þau vera í sambandi. Hún birti skömmu áður myndir á Instagram þar sem hún sagði Browne hafa gengið í skrokk á sér. Forsvarsmenn UFC fengu utanaðkomandi aðila til að rannsaka ásakanirnar. Niðurstaðan var hins vegar sú að ekki væru nægar sannanir til að halda því fram að heimilisofbeldi hefði átt sér stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×