Lífið

Robbie Williams malar gull á fasteignamarkaðnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bretinn væntanlega sáttur.
Bretinn væntanlega sáttur. Mynd/Getty
Breski tónlistarmaðurinn Robbie Williams er að gera góða hluti á fasteignamarkaðnum en hann var að selja hús sitt í Los Angeles á dögunum.

Williams fjárfesti í eigninni snemma á síðasta áratugi og var hann að selja eignina á 10 milljónir dollara fyrir. Hann greiddi helmingi minna fyrir eignina á sínum tíma og græddi því töluvert á viðskiptunum.

Þessi sjö herbergja íbúð fór á söluskrá fyrir nokkrum misserum og vildi Robbie upphaflega fá 11 milljónir dollara fyrir eignina. Alls eru 11 baðherbergi í húsinu og einnig sundlaug, spa, útieldhús og lyfta sem gengur á allar fjórar hæðirnar.

Robbie fékk rúmlega 1,1 milljarð króna eftir söluna.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×