Fótbolti

Robben hetja Bayern

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bæjarar fagna.
Bæjarar fagna.
Bayern Munchen vann Dortmund í stórleik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Arjen Robben var hetjan, en hann skoraði sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok.

Marco Reus kom Dortmund yfir eftir rúman hálftíma með frábærum skalla eftir fyrirgjöf Pierre-Emerick Aubameyang.

Heimamenn sóttu án afláts, en þeir náðu ekki að jafna fyrir hálfleik. Eftir hlé hélt sóknin áfram án afláts og stíflan brást á 72. mínútu þegar Robert Lewandowski skoraði gegn sínu gömlu félögum með hörkuskoti.

Heimamenn í Bayern fengu svo vítaspyrnu fimm mínútum fyrir leikslok þegar Subotic braut á varamannium Frank Ribery. Robben fór á punktinn og skoraði.

Lokatölur 2-1, en með sigrinum eru þeir með fjögurra stiga forystu á toppnum. Dortmund er hins vegar í fallsæti með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×