Lífið

Rikki G tók kaniláskorunina: Kafnaði næstum því og hljóp út - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ríkharð gerir þetta ekki aftur.
Ríkharð gerir þetta ekki aftur. vísir
Ríkharð Óskar Guðnason, dagskrástjóri FM957, var umsjónamaður FM95BLÖ á föstudaginn og var þátturinn með öðru sniði en vanalega. Með honum voru þeir Egill Einarsson og Ásgeir Kolbeinsson.

Í þættinum skoraði Egill á Rikka G. að borða eina matskeið af kanil og fyrir það myndi hann fá 5000 krónur.

Rikki var ekki lengi að hugsa sig um og tók þeirri áskorun strax. Egill var með símann á lofti og tók upp myndband af þessari tilraun á Snapchat-reikningi FM95BLÖ, fm95blo.

Útkoman var frábær og má með sanni segja að Ríkharð stóðst ekki þessa áskorun en hér að neðan má sjá hvernig kallinum gekk.

Hér að neðan má síðan hlusta á þáttinn í heild sinni frá því á föstudaginn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×